Norðanátt.is

Á næstunni

Skoða dagatal
 

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Smelltu hér...

Helga bætti Íslandsmetið á móti í Tallin
Laugardagur, 04. febrúar 2012 17:03
Helga á RIG
Helga á RIG

Helga Margrét Þorsteinsdóttir keppti í fimmtarþraut innanhúss á alþjóðlegu móti í Tallin í Eistlandi í gær og í dag. Þar bætti hún Íslandsmet sitt, sem var 4.205 stig, um 93 stig en hún hlaut samtals 4.298 stig í keppninni.

Nánar...
 
Leikur er barna yndi, þróunarverkefni í leikskólanum Ásgarði Húnaþingi vestra
Laugardagur, 04. febrúar 2012 08:26
f_150_100_16777215_0___images_stories_2011_leikskolinn_asgardur.jpg

Dagur leikskólans verður haldin hátíðlegur um land allt mánudaginn 6. febrúar. Einkunnarorð dagsins eru Við bjóðum góðan dag alla daga. Af því tilefni verður sérstök kynning á þróunarverkefninu Leikur er barna yndi í Ásgarði.

Nánar...
 
Þorrablót í undirbúningi á Hvammstanga
Föstudagur, 03. febrúar 2012 00:55
f_150_100_16777215_0___images_stories_2012_thorrablot_hvt_2012_undirbuningur_1.jpg

Þá fer að líða að þorrablóti Umf. Kormáks sem haldið verður í Félagsheimilinu Hvammstanga annað kvöld, laugardagskvöldið 4. febrúar, og hefst kl. 20:30. Margir bíða eflaust spenntir eftir skemmtiatriðunum, en leikæfingar hafa staðið yfir í vikunni.

Nánar...
 
Ísólfur, Fanney og Elvar áfram í KS-deildina
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 13:10

f_150_100_16777215_0___images_stories_thytur_logo.jpgÍ gærkveldi fór fram úrtaka fyrir KS-deildina í Svaðastaðahöllinni í Skagafirði. Frá Þyt fóru þrír keppendur, en keppt var um átta laus sæti. Það voru þau Elvar Logi Friðriksson, Fanney Dögg Indriðadóttir og Ísólfur Líndal Þórisson sem kepptu í gær og komust þau öll áfram í KS-deildina.

Nánar...
 
Þorrablót í Ásbyrgi og miðapantanir
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 08:36
f_150_100_16777215_0___images_stories_kistan_thorramatur.jpg

Þorrablót í Ásbyrgi á Laugarbakka verður haldið laugardaginn 11. febrúar n.k. Húsið opnar kl. 20:15 og þorrablótið hefst svo kl. 20:45. Gæðakokkar frá Borgarnesi sjá um matinn og hljómsveitin EINN OG SJÖTÍU sér um að halda uppi fjörinu langt fram eftir nóttu. Eins og venjan er þá koma þorrablótsgestir með sinn eigin disk og hnífapör.

Nánar...
 
Nóg að gera hjá Húnum það sem af er árinu
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 08:17
f_150_100_16777215_0___images_stories_logo_bjorgunarsveitin_hunar_logo.jpg

Í gær, miðvikudaginn 1. febrúar, aðstoðaði Björgunarsveitin Húnar erlenda ferðamenn sem voru í vandræðum hjá Hvítserk. Þeir fengu ferðamennirnir aðstoð við að koma jeppa sínum aftur upp á þjóðveginn.

Nánar...
 
Skyndihjálparnámskeið RKÍ
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 08:27
f_150_100_16777215_0___images_stories_rki_hvt_logo.jpg

Á Fésbókarsíðu Hvammstangadeildar Rauða Kross Íslands segir frá skyndihjálparnámskeiði sem haldið verður í safnaðarheimilinu á Hvammstanga frá kl. 16:00-22:00 föstudaginn 3. febrúar n.k.

Nánar...
 
Kynningarfundur um dreifnám
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 08:23

Á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar, verður haldinn kynningarfundur fyrir alla íbúa Húnaþings vestra um væntanlegt dreifnám. Fundurinn fer fram í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst kl. 18:00.

Nánar...
 


Leit

facebook_nordanatt_litid

 

Dagatal

Janúar 2012 Febrúar 2012 Mars 2012
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29