|
Laugardagur, 04. febrúar 2012 17:03 |
 | | Helga á RIG |
Helga Margrét Þorsteinsdóttir keppti í fimmtarþraut innanhúss á alþjóðlegu móti í Tallin í Eistlandi í gær og í dag. Þar bætti hún Íslandsmet sitt, sem var 4.205 stig, um 93 stig en hún hlaut samtals 4.298 stig í keppninni.
|
|
Nánar...
|
|
Laugardagur, 04. febrúar 2012 08:26 |
Dagur leikskólans verður haldin hátíðlegur um land allt mánudaginn 6. febrúar. Einkunnarorð dagsins eru Við bjóðum góðan dag alla daga. Af því tilefni verður sérstök kynning á þróunarverkefninu Leikur er barna yndi í Ásgarði.
|
|
Nánar...
|
|
Föstudagur, 03. febrúar 2012 00:55 |
Þá fer að líða að þorrablóti Umf. Kormáks sem haldið verður í Félagsheimilinu Hvammstanga annað kvöld, laugardagskvöldið 4. febrúar, og hefst kl. 20:30. Margir bíða eflaust spenntir eftir skemmtiatriðunum, en leikæfingar hafa staðið yfir í vikunni.
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 13:10 |
|
Í gærkveldi fór fram úrtaka fyrir KS-deildina í Svaðastaðahöllinni í Skagafirði. Frá Þyt fóru þrír keppendur, en keppt var um átta laus sæti. Það voru þau Elvar Logi Friðriksson, Fanney Dögg Indriðadóttir og Ísólfur Líndal Þórisson sem kepptu í gær og komust þau öll áfram í KS-deildina.
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 08:36 |
Þorrablót í Ásbyrgi á Laugarbakka verður haldið laugardaginn 11. febrúar n.k. Húsið opnar kl. 20:15 og þorrablótið hefst svo kl. 20:45. Gæðakokkar frá Borgarnesi sjá um matinn og hljómsveitin EINN OG SJÖTÍU sér um að halda uppi fjörinu langt fram eftir nóttu. Eins og venjan er þá koma þorrablótsgestir með sinn eigin disk og hnífapör.
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 02. febrúar 2012 08:17 |
Í gær, miðvikudaginn 1. febrúar, aðstoðaði Björgunarsveitin Húnar erlenda ferðamenn sem voru í vandræðum hjá Hvítserk. Þeir fengu ferðamennirnir aðstoð við að koma jeppa sínum aftur upp á þjóðveginn.
|
|
Nánar...
|
|
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 08:27 |
Á Fésbókarsíðu Hvammstangadeildar Rauða Kross Íslands segir frá skyndihjálparnámskeiði sem haldið verður í safnaðarheimilinu á Hvammstanga frá kl. 16:00-22:00 föstudaginn 3. febrúar n.k.
|
|
Nánar...
|
|
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 08:23 |
|
Á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar, verður haldinn kynningarfundur fyrir alla íbúa Húnaþings vestra um væntanlegt dreifnám. Fundurinn fer fram í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst kl. 18:00.
|
|
Nánar...
|