Umhverfis-, orku og lofslagsráðuneytið styður Norðanátt
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, hefur undirritað samstarfsyfirlýsingu við Norðanátt til eins árs. Með undirritun sinni lýsa umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Eimur þeim vilja sínum að stuðla, í gegnum Norðanátt, sameiginlega að nýsköpun á Norðurlandi með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið.
Ráðuneytið mun styrkja verkefnið um 20 milljónir króna.
„Loftslagsmálin eru ein stærsta áskorun sem Ísland og heimurinn allur stendur frammi fyrir. Hringrásarhagkerfið er mikilvægur liður í lausn á þeim vanda og skiptir nýsköpun, þátttaka samfélags og atvinnulífs miklu máli. Þar má enginn verða útundan og mikilvægt að allir landshlutar taki þátt. Þessvegna er ánægjulegt að vera með í þessu góða samstarfi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra.